About this role
Langar þig að starfa við fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu og heimilislegu umhverfi? Við hjá Ási erum að leita að sjúkraþjálfara til starfa. Í starfinu færðu tækifæri til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði sjúkraþjálfunar og stuðla að aukinni færni og vellíðan heimilisfólks Sjúkraþjálfari í Ási gegnir jafnframt hlutverki deildarstjóra sjúkraþjálfunar og hefur því gott svigrúm til að móta starfið, þróa þjónustuna og koma eigin hugmyndum í framkvæmd. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg umsjón og skipulag sjúkraþjálfunar á heimilinu
- Ábyrgð á faglegri þróun og gæðum sjúkraþjálfunar
- Þátttaka í teymis- og deildarstjórafundum og samstarf við aðra stjórnendur
- Umsjón með aðstöðu, búnaði og hjálpartækjum
- Skipulag og þátttaka í fræðslu starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Reynsla af starfi sem sjúkraþjálfari
- Góð íslenskukunnátta
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góð samskiptafærni og jákvæðni Fríðindi í starfi
- Stytting vinnuvikunnar
- Heilsustyrkur
- Öflugt starfsmannafélag Í Ási starfar öflugur og samheldinn hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á gott samstarf, fagleg vinnubrögð, góðan vinnuanda og heimilislegt umhverfi.
Ás er hluti af Grundarheimilunum, þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum. Grundarheimilin starfa eftir Eden-hugmyndafræðinni. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraþjálfarafélags Íslands og SFV. Vinsamlegast sendið inn ferilskrá og kynningarbréf með umsókn. Við hlökkum til að heyra frá þér! Nánari upplýsingar um starfið veitir: Birna Sif framkvæmdastjóri hjúkrunar [email protected] og Theodóra mannauðsstjóri [email protected]