Now hiring

Öryggisvörður @ Securitas hf.

IS002, ISOnsiteFull-time
Apply with ResuMinder

Opens on the employer's site

About this role

Við hjá Securitas á Akureyri leitum að öflugum einstaklingi til að koma til liðs við okkar frábæra gæsluteymi í hlutastarf. Viðkomandi kemur til með að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda. Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtilegt verkefni sem snýr að öryggisgæslu. Ef þú... býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt. býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni. ... þá gætum við verið að leita að þér! Þetta er hlutastarf og unnið er alla virka daga frá kl 15:00 til 18:30. Við hvetjum öll kyn sem eru 20 ára eða eldri og eru með hreint sakavottorð til þess að kynna sér starfið nánar og sækja um. Securitas leggur mikla áherslu á kennslu og þjálfun fyrir allt starfsfólk, sem og þróun í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst nk. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Frekari upplýsingar: [email protected]

Ready to apply?

Install the ResuMinder extension and we'll auto-fill the application in seconds — no rewriting.

See how your CV scores